blettur til framfara fyrir gomlu og dýrið

8.11.2005

Hann heitir James Blant og er snillingur. Kata gaf mér diskinn hans á laugardaginn og hann er buin að vera í standslausri spilun frá þvi á sunnudaginn... endilega fjárfestið í þessum eða rippið af netinu.. hann er frábær.
Vá hvað það verður einmannalegt þegar kata er farin... ég er farin að sakna þin áður en þu ert farin... sakn sakn... kanski flyt eg bara til þin

Ég hef reynt að halda mig við það að vera smá pæja þó að maður leggist svona í vosbúð og útiveru yfir lengri eða skemmri tima. Það er engin ástæða fyrir þvi að vera blautur í fæturnar og broða blautt fransbrauð þó maður sé í háfgerði útilegu. En guð minn góður hvað það reynist konu hálf erfitt. Voða erfitt að vera duglegur verkamaður og pæja á sama tíma!
En eg er alveg buin að komast af þvi að ef kona þarf að fá sínu fram einhverstaðar eða fá almennilega þjónustu þá þyðir ekkert annað en að laga sig til... þýðir ekkert að hanga í lopapeysu stemningunni og með hor út á kynn,,,,(ýkja.. eg veit.. en skemmtilegt ) !! eins ömurlegt og þetta hljómar þá er þetta satt. Í þessum túrum mínum þarf eg að fara inná flestar bæjarskrifstofur eða verkfræðistofur á pleisunum. Kona er dæmd á lookinu um leið og hún kemur inn og það sökkar! Eitt dæmi: var á húsavík.. var í briet bolnum mínum með leggöngunum og að vísu líka með gaddaól á úliðnum... en só vott!! það á ekki að skipta máli!!! Allavega.. ég fékk strax.. já er það vinan viðmótið!!!! Þoli ekki að kona þurfi að sanna sig með visku sinni til þess að fá virðingu! Ef ég væri með typpi þá hefði mér þetta viðhorf ekki einu sinni dottið í hug! Hefði bara verið lige glad..... hhhmmmm velti þvi fyrir mér hvort þetta segi ekki meira um mig en attitjút kalla !
Var að vinna í dag á Reyðarfirði, Eskifirði og Neskaupsstað og trillaði mér svo til Egilsstaða þar sem eg tók ultra vinnutörn þannig allt er slippery. Ég hitti ekki marga í dag en einn “spes” náunga ræddi ég við h-e-i-l lengi uff... hann er harðasti virkjunar og stórframkvæmda andstæðingur sem eg hef hitt...Merkilegt fyrirbæri sá náungi.. Virtist alveg vera nokkuð hérna megin við geð-línuna og vita ansi margt en gall harður á sínum skoðunum sem eru einhliða og óhagganlegar. Virtist vera með nokkurs konar innbyggða síu á öðrum hugmyndum og skoðunum.. virtist hreinlega ekki heyra þær. Eddie hefði fílað það í tætlur að spjalla við þennan náunga. Þetta eru engvar smá framkvæmdir sem eru í gangi á Reyðarfirði. Þetta er svo stórt og umfangsmikið... svo skyldist mér á fyrirbærinu að þeir væru búnir að fá leyfi til að losa allt brennisteinsdíoxið út í umhverfið frá verksmiðjunni... en hef ekki hugmynd um sannleika þess!!!! skerí samt!

jæja

Ég er í heimagistingu á Stóra Sandfelli hjá krúttlegustu og minnstu konu á austfjörðum. Mér leið eins og eg væri RISA hávaxin áðan þegar eg var að spjalla við hana. Herbergið er eiginlega geymsla.. fer sem sagt í gegnum “búrið” og svo inni þetta herbergi. Herbergið er líka algerlega absúrt og krúttlegt. Við erum alveg að tala um persnesk teppi á gólfinu, ullarteppi á rúminu, rósóttar gardínur og kínversk ljósakróna... svo er allt svo lítið eitthvað og krúttlegt.. myndirnar á veggjunum eru landslagsmyndir og svona blóma myndir sem er búið að sauma með krosssaum!
ég er buin að stilla símanum mínum á hæðsta stað í herberginu til að ná signale.. ef eg skyldi eiga einhverja vini... ætla að hætta þessu bulli og hlusta á tónlist og fara í kapal... sorglegt en satt

0 Comments:

Post a Comment

<< Home